Færsluflokkur: Lífstíll

Og koma svo!!

Ég er að gera mitt besta fyrir Ísland herra Steingrímur!! Ég elska Rússa.Þeir koma næstir á eftir Guði og Arsenal. Eða Arsenal og Guði.Eg er ekki alveg viss.Það væri betra ef Jesú væri á kantinum hjá Arsenal.Þá væri þetta auðveldara.Helvítis biskupar eru búnir að kúka svolítið á barnatrúna.Ég ætla samt að reykja svolítið meira og reyna drekka pinku meira ,en það er bara svo erfitt.Auðvitað eiga menn eins og ég að fá fálkaorðu."Þessi maður hefur gert meira fyrir þjóð sína en þið venjulegu skítalabbar!!".Pin me Óli"Það er verst að ég er ekki að sjá þetta lið fyrir mér í Himnaríki.Þar búa aðallega sjómenn,bændur og húsmæður.Og einstaka handpikkaður snillingur.Djöfull er orðinn leiður á þessu liði.Þegar menn eins og ég eru farnir að hugsa um flytja úr landi er þetta eiginlega búið.Frekar heimskir.Drullumst í gegnum skóla,vinnum tvöfalda,þrefalda vinnu.Tökum aldrei veikindadag nema þegar við komumst ekki fram úr rúminu.Skuldum bara nóg til að geta borgað af því.Elskum konuna,börnin,Arsenal og Jesú og höfum ekki þörf fyrir annað.Við erum fokking kjarninn í þessu þjóðfélagi og það er verið að skíta á okkur!.


Persónulegi legsteinninn!

Atvinnuþróunarsjóður Akureyrar hefur afgreitt umsókn Geirlauks Lúthersonar um styrk að upphæð 5750.000 kr. til fyrirtækis hans við þróun og markaðsetningu á hugmynd hans um Persónulega lesteinninn.Fyrirtæki hans Fart of the past hefur um nokkurt skeið boðið fólki upp á Persónulega legsteina sem hafa notið nokkurra vinsælda. Td legsteinn byggingarverktakans sem er kross með Alkalískemmdum og hornskakkur,Legsteinn Bankamannsinns sem er nokkur skonar sjónhverfing þarsem krossinn sést úr fjarlægð en hverfur mönnum sjónum þegar að honum er komið,legsteinn rakarans sem er gerður úr mygluosti.Legsteinn Kvótaeigandans sem fæst frítt og er settur upp tímabundið en síðan tekinn niður og leigður hæstbjóðenda,legsteinn vélstjórans sem er gerður úr sm.oliuskilvinduúrgangi,legsteinn stofnfjáreigandans sem er fallegur slípaður Granítsteinn sem er látinn í mulningsvél áður en honum er dreift yfir gröfina,legsteinn bakarans sem er bakaður úr spelti og nýjasta hittið legsteinn Litháans sem gerður úr saurmenguðu amfetamíni.

Vér styðjum Evróvisíonhimpigimpin Hvanndalsbræður

Styðjum nú öll Hvanndalsbræður í Evróvisíon. Fyrir föður þeirra Jakob Hvanndal Þann snilling sem gjarnan tuggði skro og greip um rasskinnar ungrafljóða og mat hvursu þýðgengar þær yrðu milli þúfna í lambárhaganum.Mann sem trúði á föðurlandið og gekk í því líka auk þess að kenna börnum sínum 'ogrynni fallegra ljóða sem segja frá þankagang íslenskra alþýðumanna.Spilaði hann þá gjarnan undir á uppstoppuð júru þar sem misstór göt á spennunum gáfu frá ómþýða hljóma. Þar hafa tónlistarhæfileikar þeirra náð að þroskast því alltaf grétu börnin á heimilinu í melódíu og vakti hinn fallegi hljómagangur ætíð athygli förufólks.Einu barninu heimilinu var þó hent af því að það var svart og grenjaði mikið yfir því af því Jakob taldi.Þó móðir þeirra bræðra væri blökkukona af því leyti að hún kom frá Reykjavík hafði Jakobi tekist að lækna hana enda aldi hann hann hana einungis á súrum hval og skyrhákarl.En þó að hún  væri himpigimpi var hún afar góð sultugerðarkona og sængur gerði hún líka sem voru frægar um allan hvanndal en þær tróð hún út með hrossataði.Seldust þær svo vel að um sannkallaða græna stóriðju var um að ræða.Komu börn einatt undan sængum þessum eftir fermingu sem góðir og gildir Framsóknarmenn.Sjá má þessu að Hvanndalsbræður eru komnir undan sönnum 'Islendingum.Mönnum sem vöktu heiminn á morgnanna með hraustlegu freti og konum sem ólu 3.ungabörn í einu þá er eitt var að skríða út var annað á maganum og þriðja að fara af brjósti.Þeir munu þjóna okkur vel á erlendri grund og verða stolt 'Islands og sómi.


Höfundur

Þorsteinn Jónas Skjóldal Haraldsson
Þorsteinn Jónas Skjóldal Haraldsson
maðurinn sem fann upp strákústinn og snarttengið og samdi flesta textana fyrir Queen
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband